Múrarar, málarar, smiðir og fleiri iðngreinar
Við erum sérfræðingar í spörtlun, málun, steypu, múrvinnu og öllu almennu viðhaldi innanhúss sem utan. Bjóðum upp á sérsniðnar lausnir sem endast.
Okkar markmið eru að bjóða ávallt
hæstu gæði, samkeppnishæf verð og tímaáætlanir sem standast.
Við erum réttu aðilarnir í múrverkið, málningarverkin og flest allt viðhald.
Ágúst Fjalar Jónasson er eigandi og framkvæmdastjóri Mál og Múrverk ehf. Fjalar er löggiltur verkfræðingur með byggingastjóraréttindi ásamt því að vera löggiltur málarameistari. Fjalar hefur tekið þátt í og stýrt fjölmörgum viðhalds- og endurbótaverkefnum víða um Ísland, í samstarfi við hönnuði, arkitekta, ýmsa framkvæmdaraðila, Framkvæmdasýslu ríkisins o.s.frv.
Fyrirtækið er með gæðastjórnunarkerfi, vottað af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Hjá fyrirtækinu starfa smiðir, múrarar og málarar með mikla reynslu. Einnig erum við í nánu samstarfi við t.d pípulagningameistara, rafvirkjameistara og fleiri.
Verkáætlanir
Við klárum verkefni innan umsamins tímaramma. Tími þinn er dýrmætur og við setjum það í forgang að skila vönduðu verki á áætlun.
Hagkvæmni
Með mikla reynslu þá erum við mjög skilvirkir. Þetta gerir okkur kleift að bjóða samkeppnishæf verð án þess að skerða gæði.
Þjónustan okkar
Við bjóðum upp á víðtæka þjónustu í tengslum við múr og málningarvinnu.
Húsaviðgerðir
Sérhæfing í steypuviðgerðum fyrir heimili og fyrirtæki. Varanlegar lagfæringar sem þú getur treyst.
Málun og spörtlun
Við tökum að okkur hvers kyns málningarverkefni.
Gólf, Flotun & Tröppuviðgerðir
Sérhæfing í tröppuviðgerðum innan og utanhúss til að tryggja öryggi og endingu á heimili þínu.
Þakmálun
Þakmálun til að vernda og fríska upp á ytra byrði heimilisins og lengja líftíma þess.
